Flokkur: 2009

01.01.2009 19:29

Hugsað upphátt!

Þá er árið 2008 liðið. Ég get svo með sanni sagt að ég hef lært heil ósköp í 2008.
En skildi
Fjallabyggð hafa lært eitthvað? Eins og þetta hefur verið að þá er talað hin ósköp en aldrei neitt gert í hlutunum frekar en fyrri daginn. Skildi árið 2009 vera árið sem það breytist? Æji nei ætli það...
Annars reyni ég eftir mesta megni að vera jákvæð frekar en hitt. Það fer einhvernvegin minni orka í það að vera jákvæður en neikvæður. Reyndar fer engin orka í jákvæðni yfir höfuð maður bara græðir.

Spurning hvort Bæjastjórn Fjallabyggðar hefði ekki átt að gera áramótaheit þetta árið!

 Ef ég ætti að svara spurningunni í dag, er gott að búa í Fjallabyggð?  Þá væri svarið að jú það er gott að búa þar sem fjölskyldan er staðsett og það er í Fjallabyggð eins og er. En það eru bara 3 hlutir sem halda manni hér... Nr. I er fjölskyldan, nr.II er fyrirtækin sem við rekum og nr.III er vinnan sem við höfum.  En ekki endilega í þessari röð.
Ekki get ég sagt að Fjallabyggð reyni eitthvað til að halda í fólk sem fyrir er, nei þvert á móti.
Reynir Fjallabyggð að gera eitthvað til þess að laða að fólk? Nei þvert á móti, það getur ekki einu sinni haldið í fólkið sem fyrir er.
Reynir Fjallabyggð að gera eitthvað til þess að halda í fyrirtæki í bænum? Nei þvert á móti.
Reynir Fjallabyggð að gera eitthvað í nýjum fyrirtækjum? Tja það er heila spurningin.... Það er nú ágætis reglur um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki á heimasíðu Fjallabyggðar. En er þeim fylgt?

Ég get ekki svarað fyrir aðra, en fyrir Gistihúsið get ég þó sagt að við sóttum um niðurfellingu á fasteignagjöldum og í sömu umsókn um að Fjallabyggð styrkti okkur um sömu upphæð og ÍBS er að fá fyrir Hól, en nei við styðjum ekki við bakið á ný stofnuðum fyrirtækjum, við erum meira fyrir að dæla peningum í aðra starfsemi sem er í bullandi samkeppni við hina. Við erum líka meira fyrir að reka eigin tæki og tól í samkeppni við fyrirtækin sem borga til okkar skatta, þannig fáum við meira fyrir peninginn. Við meira að segja fáum góðan díl hjá fyrirtækjunum í bænum svo þau geti borgað með okkur! Hvernig getur sveitarfélag réttlætt það að biðja um afslætti?

Veltum þessu aðeins fyrir okkur:

Hvað gerir fólkið fyrir Fjallabyggð?  Hvað gerir Fjallabyggð fyrir fólkið?

Hmmm... ég get nú bara en og aftur talað frá eigin reynslu þar sem ég nú bý hér og rek Gistihúsið ásamt foreldrum mínum J
Jú látum okkur sjá, fólk lætur aldeilis í sér heyra ef öðru fólki gengur vel. Því að þeirra mati að þá er það alls ekki gott ef öðru fólki en því sjálfu gengur vel. Þá er það sko pakkið þarna td. með Gistihúsið.
En ef aftur á móti ef "pakkið" þarna sem allt í einu er ekki pakk lengur því það er efnað og veit ekki aura sinna tal að þá er það sko virt í samfélaginu og að því vegni vel er bara æðislegt og svona fólki þarf að umbuna og helst þannig að það fái bara allt upp í hendurnar og nánast frítt eða á afsláttum. Og er ég þá ekki endilega að tala bara um gistihús svo það sé á hreinu.

Fólkið leigir út húsnæði sín óspart yfir helgi eða viku eða tvær. Annað hvort er um sumarhús að ræða eða eigin húsnæði, það hreinlega gistir bara hjá mömmu og pabba á meðan. Það eru nú dæmi um að það er búið að setja upp heilu heimasíðurnar fyrir heimagistingar í Fjallabyggð. Ekkert af þessu fólki er með rekstarleyfi. Bíddu þarf eitthvert leyfi fyrir því að leigja bara húsið sitt? Er ekki bara hægt að stinga peningnum í vasann? Það hefur nú gengið hingað til í Fjallabyggð! Ó, þarf að skila inn skatti fyrir að leigja eigið hús? Bíddu eru einhverjar kröfur sem maður þarf að uppfylla? Kaupir maður bara ekki eitthvað hús eins og sumarhús eða jafnvel raðhús og byrjar bara að moka inn aurunum J Við þurfum þó ekki að uppfylla einhver skilyrði? Ef eitthvað kemur fyrir, hlýtur það að vera á ábyrgð hins aðilans... Ég meina ég bara leigði húsið! Hér eru upplýsingar um þá aðila sem eru með leyfi á landinu. Gistileyfi heitir nú Rekstrarleyfi og vil ég taka fram að umsókn um leyfi til sölu gistingar er afgreidd hjá leyfisveitanda í því umdæmi sem hin leyfisskylda starfsemi á að fara fram, sem þýðir, ef húsið er á Siglufirði, færðu leyfið hjá Sýslumanni á Siglufirði.

Hér er listinn fyrir þá sem ekki kunna á leitarvélina tók póst nr. 570, 580 og 625:

Rekstraraðili                                     Pnr                                  Gata                               Leyfistegund     Gildir til

Félagsheimilið Ketilás                   570 - Fljót                     Ökrum                           Veitingaleyfi      01.08.2010

Allinn ehf                                          580 - Siglufjörður       Þormóðsgata 13-15  Rekstarleyfi       01.03.2012

Bíó Café                                             580 - Siglufjörður       Aðalgata 30                Rekstarleyfi      01.03.2012

Bíó Café                                             580 - Siglufjörður       Aðalgata 30                Veitingaleyfi     01.09.2009

Ferðaþjónusta Siglufjarðar        580 - Siglufjörður       Hverfisgata 5a              Gistileyfi           20.06.2010

Gistiheimilið Höfnin                      580 - Siglufjörður       Lækjargata 10             Gistileyfi           27.10.2009

Gistiheimilið Höfnin                      580 - Siglufjörður       Lækjargata 10             Veitingaleyfi      27.10.2009

Gistihúsið Hvanneyri                    580 - Siglufjörður       Aðalgata 10                  Rekstarleyfi       01.03.2012

Íþróttamiðstöðin Hóli                  580 - Siglufjörður       Hóll                                 Gistileyfi            14.02.2010

Lionsklúbbur Siglufjarðar           580 - Siglufjörður       Suðurgata 6                  Rekstarleyfi       01.03.2012

Síldarminjasafnið á Siglufirði     580 - Siglufjörður       Snorragata 9-17         Veitingaleyfi      28.12.2008

Stöðin Sigló                                      580 - Siglufjörður       Aðalgata 32                 Veitingaleyfi    15.12.2009

Sölvar ehf.                                        580 - Siglufjörður       Tjarnargata 6               Rekstarleyfi     01.03.2012

Brimneshótel ehf                            625 - Ólafsfjörður      Bylgjubyggð 2                Hótelleyfi         23.05.2010

Höllin                                                    625 - Ólafsfjörður      Hafnargata 16           Veitingaleyfi   23.05.2010

Höllin veitingahús ehf.                  625 - Ólafsfjörður      Hafnargötu 16               Rekstarleyfi     01.03.2012

Tjarnarborg                                       625 - Ólafsfjörður      Aðalgata 13                  Rekstarleyfi    01.03.2112

Það er nokkuð ljóst að fyrirtæki hér í bæ lifa ekki á loftinu og hafa aldrei gert, nema þau sem virðast vera með þessi sérréttindi til þess.
Þau ykkar sem eruð að reka fyrirtæki, takið ykkur tak og sækið um tilskilin leyfi!
Einhverstaðar í bænum er til fólk sem segir að við viljum ekki hafa mörg fyrirtæki í sama bransa í bænum. Við viljum frekar hlúa að þeim sem við eigum svo þau standi vel. En það fólk er bara ekki samkvæmt sjálfu sér þegar öllu er á botninn hvolft. Hvað finnst ykkur td. um þegar bæjarfélög eða aðrar stofnanir gerast hluthafar í nýstofnuðum fyrirtækjum? Bíddu.... hvað varð um það að hlúa að þeim sem fyrir eru...

Hvernig væri að skoða til dæmis Íþróttamiðstöðina að Hóli.
Uppfyllir það kröfur rekstrarleyfisins? Er viðurkennt brunakerfi að Hóli? Er sími ef tilkynna þyrfti eld eða aðra hættu? Eru slökkvitæki tilstaðar? Nei ég segi svona. Auðvitað hlýtur það að vera því öðruvísi fær maður ekki rekstrarleyfi. EInhver hlýtur að þurfa að taka þetta út og fylgja þessu eftir, það er hvenær sem er hægt að labba inn og athuga hvort reglum sé fylgt og ef ekki er hægt hvenær sem er að loka viðkomandi stað - þarna gista börnin okkar og aðrir ferðalangar. Ég krefst þess reyndar strax að þetta verði gert!
Vil ég nú nefna að það er brot á samkeppnislögum ef félag er að þiggja styrki frá hinu opinbera/Fjallabyggð og rekur sambærilegan rekstur og Gistihúsið í leiðinni. Það sér það hver heilvita maður að það gengur aldrei upp.

Íþróttafélög eru virðisaukaskattsskyld vegna sölu sinnar á vörum og virðisaukaskattsskyldrar þjónustu sem fram fer í atvinnuskyni enda þótt þau selji aðeins félagsmönnum sínum. Við mat á því hvort starfsemi sé rekin í atvinnuskyni er aðallega miðað við hvort tilgangur starfseminnar sé að skila hagnaði af rekstri.

Starfsemi telst vera rekin í samkeppni við atvinnufyrirtæki samkvæmt reglugerðinni þegar viðkomandi vara eða þjónusta er almennt í boði hjá virðisaukaskattsskyldum atvinnufyrirtækjum og skiptir ekki máli í því sambandi hvort eða hve mikið aðili selur af slíkum vörum eða þjónustu til annarra.

En svo bera  stjórnarmenn og framkvæmdastjórar íþróttafélaga ábyrgð á framtals- og skýrsluskilum félaganna til skatts. Verði uppvís brot á skattalögum geta bæði viðkomandi íþróttafélög og forsvarsmenn þeirra sætt refsiábyrgð. Skildi formaður eða gjaldkeri ÍBS vera tilbúin til að gera það? Þetta er auðvita ekkert bankastjórastarf svo þau hafa nú ekkert val. Þetta er nefnilega þannig í dag að fáir þú greitt fyrir vinnuna er ábyrgðin engin en aftur á móti, færðu ekkert, situr þú í súpunni?!?

Hér eru nokkrar vangaveltur sem ég hef og gæti beint til Bæjarstjórnar eða Bæjarráðs Fjallabyggðar eða bara öllum þeim sem ætla að tala minna og gera meira í 2009.

Það er spurning....

1.       Hvort Fjallabyggð hafi myndað sér stefnumótun í ferðamálum?

2.       Hvort það sé ekki líka ábyrgð Fjallabyggðar að tryggja að fyrirtæki í Fjallabyggð séu ekki beitt ólöglegri samkeppni?

3.       Hvort að Fjallabyggð ætti ekki að hvetja fyrirtækin í bæjarfélaginu til þess að endurnýja rekstrarleyfin sem þeim ber að hafa og hvetja þau sem ekki hafa þau að sækja um þau strax.

4.       Hvort Fjallabyggð taki nú ekki hendur fram úr ermum og hætti sjálft samkeppni við fyrirtæki sem eru að reyna að lifa af í bæjarfélaginu.

5.       Hvort Fjallabyggð hafi tekið ákvörðun um að styrkja líka önnur fyrirtæki í bæjarfélaginu sem eru að greiða alla sína skatta og skyldur, eins og það styrkir önnur félagasamtök sem eru í beinni samkeppni við fyrirtækin?

6.       Hvort Fjallabyggð taki sér ekki tak og geri loksins eitthvað í málunum sem upp á borð koma í stað þess að bara funda um málin og beina þeim á einhver önnur mið þar til þau hreinlega bara gleymast eða hverfa.

7.       Hvort Fjallabyggð fari ekki að kynna sér eigin reglur um stuðning við frumkvöðla og fyrirtæki? Nánar tiltekið gr.4, 4.1.

8.       Hvort Fjallabyggð ómakaði sig ekki smávegis og setti inn á heimasíðu sína lög og reglur varðandi útleigu í skemmri tíma á húsnæði og eða sumarhúsum sínum svo bæjarbúar viti nú hvað er rétt og rangt.

Jæja best ég láti þetta gott heita, enda er ég hér með búin að festa á blað það sem allir í raun vita en þora ekki að segja og það er bannað! En hvað um það þetta gengur auðvita ekki svona til lengdar alveg eins og peningamál Íslendinga!

KSA

  • 1
Flettingar í dag: 34
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 38
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 135428
Samtals gestir: 39090
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 17:17:32