Færslur: 2009 Maí
07.05.2009 22:31
Gistirými
Í kvöld heyrði ég aðeins minnst á að hér á Siglufirði er vöntun á gistirými og til að leysa þann vanda hefur Rauðka sett upp leigumiðlun.
Fyrir þau ykkar sem þekkja ekki til Rauðku að þá er það félag sem hefur verið að byggja upp bátahöfnina hér á Siglufirði með þvílíkum tilþrifum og sóma fyrir Siglufjörð að það er engu lagi líkt! Sumir myndu nú kalla þetta klikkun á háu stigi :) En staðreyndin er sú að vinna Rauðku í miðbænum er algjört augnakonfekt.
Ég myndi vísa í link ef ég vissi bara um einhvern en sá held ég sé bara ekki til.
Rauðka hefur stór plön sem kosta mikinn pening en það eru góðir aðilar á bakvið svo við skulum ætla að þetta potist eitthvað áfram. Það á meðal annars að koma veitingastaður og hótel. Einhverntíma heyrði ég af kaffihúsi en kannski er það komið út í veitingastað. Enda gengur kaffihús væntanlega ekki hér á Siglufirði, því þú færð þetta allstaðar frítt.
Hótel væri eitthvað sem ég gæti séð rísa en ég held að Rauðka skjóti sig svolítið í fótinn með leigumiðluninni með þau plön.
Ég get sagt fyrir mig og Gistihúsið að það eru fjórar helgar á ári sem er fullt. Það er jú eins og flestir vita, Páskar, Þjóðlagahátíð, Verslunarmannahelgin og Pæjumót. Aðrar helgar og vikudagar er rólegt.
Best ég gefi ykkur tölur svo þið áttið ykkur á þessari vöntun á gistirými.
Við tókum við í lok mars 2007 þannig að við eigum tölur fyrir heilt ár sem er 2008 og hér koma þær:
Júlí mánuður er svona góður vegna Þjóðlagahátíðarinnar og vil ég benda á hér hefur Gunnsteinn gert gott með því að hafa hátíðina á Siglufirði.
Besti mánuðurinn er Ágúst mánuður, en samt sem áður eru þarna 60,22% ónýtt og það er meira en helmingur. Í Janúar eru 95,51% ónýtt gistirými á Gistihúsinu og er það lélegasti mánuðurinn árið 2008.
Hvenær er það sem við þurfum á gestum að halda.... klárlega yfir vetrarmánuðina og það er þá sem að leigumiðlunin grefur undan okkur og jú sínum plönum um hótelrekstur. Við meigum heldur ekki gleyma því að hinum megin við göngin eru gistirými líka, þau verða til takst í 2010 og mun koma Þjóðlagahátíðinni vel og vonandi getur hún þá stækkað. Ég veit það ekki en mér finnst ekki vera vöntun á gistirými, hvorki á Siglufirði eða í Fjallabyggð í heild sinni.
Gistihúsið er búið að berjast fyrir því að sumarbústaðaeigendur hætti þessari svörtu útleigu og skaffi sér þá í það minnsta leyfi til að stunda útleigu. Því þörfin er mest hjá okkur á veturnar og við meigum ekki við því að missa gestina í sumarhús. Þannig er það bara. Við þurfum á þessum litlu aurum að halda til þess að geta verið til staðar þessar 4 helgar á ári þegar þörfin er mest. Ég meina gestirnir í janúar dekka ekki einu sinni fyrstu greiðslu fasteignagjalda. Það er ekki hægt að hafa bara opið þegar eitthvað er að gera. Staðurinn þarf samt sem áður að greiða leyfi og skatta.
Þetta er ágætis rök fyrir leigumiðluninni að gera sumarbústaðaeigendum kleyft að eiga og reka húsin sín.... En Gistihúsið? Ég held að Rauðka eigi að hugsa þetta aðeins betur... eða prufa að setja upp kosti og galla þessa.
Við á Gisthúsinu erum búin að vera að standsetja hjá okkur en það er erfitt þegar maður er að fjármagna allt sjálfur, en hvað þetta potast. Nú erum við búin að flísaleggja og fjárfesta í fleiri sturtum svo núna er vinna framundan hjá okkur en við höfum ekki efni á að ráða fagmenn í þetta svo gömlu hjónin ráðast í þetta eins og þeim einum er lagið.
Svo voru plön hjá okkur að stækka við okkur og setja upp lyftu en það verður ekki í bráð. Þurfum fleirri gesti, ekki fengum við neitt að ráði í vetur, þrátt fyrir frábært ár hjá Valló. Nokkrir skíðahópar hefðu sett svip á tölurnar en það kom engin til okkar, en vonandi verður næsti vetur betri :) Það getur ekki versnað!
Það eru hreint frábærar tölur hjá Valló og vil ég bara nýta tækifærið og óska Agli & Co. til hamingju með frábæran vetur! Þetta er glæsileg auglýsing fyrir bæinn okkar eins og bara Rauðka. Samvinna skilar flottum árangri það er engin spurning.
KSA.

| Janúar | Febrúar | Mars | Apríl | Maí | Júní | Júlí | Ágúst | September | Október | Nóvember | Desember |
| 4,49% | 6,45% | 10,94% | 7,39% | 23,56% | 24,06% | 38,71% | 39,78% | 16,39% | 15,86% | 17,36% | 12,50% |

Skrifað af KSA
- 1
Flettingar í dag: 34
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 38
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 135428
Samtals gestir: 39090
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 17:17:32